Innlent

Upplifun að hitta Dalai Lama

heimsókn á alþingi Dalai Lama heimsótti meðal annars Alþingi í gær í boði Ástu R. Jóhannesdóttur þingforseta og utanríkismálanefndar þingsins.fréttablaðið/vilhelm
heimsókn á alþingi Dalai Lama heimsótti meðal annars Alþingi í gær í boði Ástu R. Jóhannesdóttur þingforseta og utanríkismálanefndar þingsins.fréttablaðið/vilhelm

„Það er alltaf upplifun að hitta jafn merka menn og Dalai Lama er. Ég hef ekki kafað djúpt ofan í málefni Tíbets en þessi fundur vakti áhuga minn enn frekar á þeim málum,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, sem í gær átti stuttan fund með Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta.

Dalai Lama gerði víðreist um borgina í gær og var hvarvetna vel tekið. Löng biðröð myndaðist fyrir framan Laugardalshöllina þar sem trúarleiðtoginn hélt fyrirlestur fyrir fullu húsi. Einnig var hvert sæti skipað í hátíðarsal Háskóla Íslands þar sem hann flutti erindi. Þá hitti Dalai Lama Ástu Ragnheiði Jóhannes­dóttur, forseta Alþingis, í þinghúsinu og fundaði með þingmönnum utanríkismálanefndar.

Katrín fund­aði með Dalai Lama ásamt Ögmundi Jónas­syni, heilbrigðis­ráðherra, Birgittu Jónsdóttur, þingflokks­formanni Borgarahreyfingarinnar og Björgvini G. Sigurðssyni, þingflokks­formanni Samfylkingarinnar.

Að sögn Katrínar stóð fundurinn heldur stutt yfir, rúmlega tuttugu mínútur, enda dagskrá Dalai Lama þétt­skipuð í stuttri heimsókn hingað til lands.

„Við ræddum aðallega um deilur útlagastjórnar­innar í Tíbet við kínversk stjórnvöld.“- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×