Innlent

Icesave rætt í fyrsta lagi á fimmtudag

Helgi Hjörvar þingmaður
Helgi Hjörvar þingmaður
Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir að nefndin sé að vinna eins fljótt og hægt er að því að klára vinnu við nefndarálit um Icesave-samninginn. Álitið verður tilbúið í fyrsta lagi á miðvikudaginn, að sögn Guðbjarts.

„Ég vil meina að allt sem við þurfum til að taka ákvörðun liggi fyrir. Þá er bara að skrifa nefndarálit og hugsanlega gera tillögur að breytingum á frumvarpinu," segir Guðbjartur. Hann segir að reynt verði að ná breiðari sátt um málið.

Til dæmis finnist mönnum að setja eigi endurskoðunarákvæði í samninginn. Verið er að skoða hvort ákvæðið muni fella samninginn. Telur Guðbjartur að málið fari til þriðju umræðu í fyrsta lagi á fimmtudag eða tefjist jafnvel fram í næstu viku.

Fjárlaganefnd fundar á morgun en nefndarálit er ekki hægt að skrifa fyrr en nefndarálit koma frá efnahags- og skattanefnd og utanríkismálanefnd. Álit fjárlaganefndar um Icesave er meðal annars unnið upp úr hinum tveimur álitunum.

Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar, segir að nefndin hafi lokið við að hitta gesti og verið sé að leggja lokahönd á umsögn nefndarinnar. Nefndin hefur haft málið til umfjöllunar í hálfan mánuð.

„Ég reikna með að þetta verði rætt í nefndinni á morgun eða í síðasta lagi á þriðjudaginn til að kanna hvort það er samstaða um álitið," segir Helgi, sem setur þó þann fyrirvara að þetta gæti tekið lengri tíma.

Ólöf Nordal, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í fjárlaganefnd, vill fresta málinu fram á haust. Vill hún að fjárlaganefnd noti sumarið „til að vinna að þessu af einhverju viti" og þingið klári þetta á septemberþinginu.

„Samkvæmt samningnum þurfum við að afgreiða þetta á sumarþingi, en því lýkur 15. september. Það þýðir að við myndum hafa tvær vikur í september til að afgreiða þetta í staðinn fyrir að keyra þetta áfram án þess að vera búin að svara grundvallarspurningum um sjálfan samninginn," segir Ólöf. vidirp@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×