Mönnum bjargað fyrir utan Sandgerði 5. júní 2009 02:30 Á strandstað Litlu munaði að Tý tækist ekki að draga Sóleyju Sigurjóns á flot, en það tókst að lokum. mynd/víkurfréttir „
Auðvitað verður manni brugðið. Maður væri ekki heilbrigður annars. Ég hef verið á sjó síðan ég var krakki og veit hvað sjórinn getur gert. Hann gefur og tekur,“ segir Karl Einar Óskarsson, annar hafnsögumannanna sem voru hætt komnir þegar bát þeirra hvolfdi í innsiglingunni í Sandgerði í gær. Varðskipið Týr hafði verið ásamt dráttarbátum að draga af stað togarann Sóleyju Sigurjóns, sem hafði strandað í innsiglingunni, og var búið að toga hátt í klukkustund þegar skipið losnaði. Samkvæmt tilkynningu Landhelgisgæslunnar voru það landfestar Sóleyjar, sem tengdar voru í hafnsögubátinn, sem drógu hann á hliðina þegar Sóley losnaði, en Karl Einar vill ekki fjölyrða um hvers vegna fór sem fór, ekki fyrr en eftir sjópróf. Karl Einar var sjálfur úti á dekki og fór því beint í sjóinn. Hann var kominn í bát björgunarfélagsins Sigurvonar innan við hálfri mínútu síðar. Skipstjóri bátsins, Aðalsteinn, var hins vegar inni í stýrishúsinu þegar bátnum hvolfdi og birtist ekki ofansjávar fyrr en eftir eina til tvær mínútur. Guðmundur Ólafsson, formaður björgunarsveitarinnar Sigurvonar, segir björgunina sem slíka hafa gengið vel, þangað til bátnum hvolfdi. „Það var svolítið sjokk,“ segir hann. „Það eru sjálfsagt margar ástæður fyrir þessu. En það var verið að draga þrettán hundruð tonna skip og við vorum á tiltölulega mikilli ferð. Þú stoppar ekki þrettán hundruð tonn á einu augnabliki,“ segir Guðmundur. Í gærkvöldi vann köfunarfélag að því að ná hafnsögubátnum úr höfninni með því að koma belgjum á hann. Togarinn Sóley er talinn óskemmdur og sigldi undir eigin vélarafli til hafnar. „Þetta er mjög þykkt stál í honum, byggt fyrir ísinn við Grænland,“ segir Guðmundur. Ekki var vitað hvort olía hefði lekið úr togaranum í gær. klemens@frettabladid.is Guðmundur Ingi Ólafsson laus úr greipum ægis hinn
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira