Guðlaugur og Árni falla niður um sæti á framboðslistum 30. apríl 2009 04:00
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks féllu niður um sæti vegna útstrikana í alþingiskosningum laugardags. Guðlaugur Þór Þórðarson, efsti frambjóðandi í Reykjavíkurkjördæmi suður, fellur niður í annað sætið. Árni Johnsen í Suðurkjördæmi fellur úr öðru sæti í það þriðja. Þeir komast þó báðir á þing. Aðrar útstrikanir höfðu ekki áhrif á stöðu þingmanna. Mikið hafði verið rætt um stöðu Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, frambjóðanda Samfylkingar, en hún féll ekki niður um sæti, þrátt fyrir margar útstrikanir. „Fréttirnar af þessum útstrikunum hjá mér voru kannski dramatískari en raunveruleikinn," segir hún. „Ég held að kjósendur hafi uppgötvað þessa leið og beitt henni og það er hið besta mál. Ég fæ þessar útstrikanir líklega út af styrkjaumræðunni, hvort sem það er að ósekju eða ekki. Ég læt aðra um að dæma það, en ég held að ekki hafi öll kurl komið til grafar í því máli," segir Steinunn. Enn sé óupplýst um styrki til annarra frambjóðenda í öllum flokkum, frá öðrum fyrirtækjum en FL Group og Baugi. Hún telur útstrikanirnar ekki veikja stöðu sína innan flokksins, enda hafi fleiri fengið að kenna á þeim en hún. „En ég tók á mig ákveðinn skell fyrir flokkinn. Það var flokksleg ákvörðun að halda prófkjör og þau kosta háar upphæðir." Steinunn vill nú byggja upp traust kjósenda að nýju. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, telur að þröskuldur útstrikana sé of lágur, auðvelt sé fyrir litla hópa að breyta röð á lista. „Mér þykja þessar útstrikanir svolítið langsóttar aðferðir eftir velheppnuð prófkjör. Það geta alltaf verið ástæður fyrir útstrikunum, og við því er ekkert að segja, en mér finnst ekki mikið lýðræði í því að fimmtán prósent kjósenda geti ráðið meiru en hin 85 prósentin," segir Árni. Hann vill ekki tjá sig um hvort aðrir frambjóðendur Sjálfstæðis-flokks hafi unnið gegn honum í kjördæminu.0 Kolbrún Halldórsdóttir segist hafa spurt sig strax í prófkjörinu hvort grænar áherslur væru á undanhaldi í flokknum, þegar hún lenti þar í þriðja sæti. Hún segist enn vilja gegna starfi umhverfisráðherra, en missi ekki svefn yfir því. „Ég hef alltaf verið umdeild innan flokks og utan, og hef alltaf getað lifað með því. Það er líf eftir pólitík." Ekki náðist í Guðlaug Þór Þórðarson, en hann var gagnrýndur í kosningabaráttunni fyrir að þiggja háa styrki frá FL Group og Baugi og fyrir að hafa haft milligöngu um styrki til Sjálfstæðisflokksins. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sjá meira