Minni skömm en áður 11. október 2009 19:01
Nærri 170 fasteignir hafa verið seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík það sem af er þessu ári. Það eru fleiri nauðungarsölur en allt árið í fyrra. Alþingi samþykkti síðasta vor lög sem heimila frestun nauðungarsölu fasteigna. Lögin falla úr gildi um næstu mánaðamót en þá er búist við holskeflu nauðungaruppboða. Tæplega 100 uppboðum hefur verið frestað í samræmi við lögin. Lögin eru nú til skoðunar hjá dómsmálaráðuneytinu með það fyrir augum að koma í veg fyrir að uppboðin komi til öll framkvæmda á sama tíma. Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, sagði í samtali við fréttastofu í dag að frekari frestun sé ekki inni í myndinni en reynt verður að fresta uppboðum í kringum jólin. Á síðasta ári var 161 fasteign seld nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Það sem af er þessu ári hafa 166 fasteignir verið seldar á nauðungaruppboði og eru uppboðin því þegar orðin fleiri en allt árið í fyrra. Um tíu þúsund heimili í landinu eru talin vera í alvarlegum fjárhagsvanda. Forstöðumaður Ráðgjafarstofu heimilanna segir að fólk sé ófeimnara við að leita sér aðstoðar í dag en áður. „Frá hruninu hefur það breyst með þeim hætti að áður var það þannig að fólki fannst mjög erfitt að leita ráðgjafar hjá okkur. Það hefur gerbreyst. Fólki finnst ekkert erfitt að leita til okkar," segir Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu heimilanna. „Það má segja að við erum öll í svo miklum erfiðleikum. Það er engin skömm í dag að eiga í greiðsluerfiðleikum sem kannski þótti áður," segir Ásta Sigrún.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira