Innlent

Hægt að semja um flýtimeðferð

Sérfræðingur í Evrópumálum hér á landi telur möguleika á því að semja við seðlabanka Evrópu um flýtimeðferð til að festa gengi íslensku krónunnar gagnvart evrunni. Slíkt gæti komið í veg fyrir frekara fall krónunnar og spákaupmenn gætu síður tekið stöðu gegn henni.

Eiríkur Bergmann forstöðumaður Evrópufræðaseturs á Bifröst hefur gefið út bókina sem ber heitið Frá Evróvision til evru. Þar er fjallað um Evrópusambandið og meðal annars hvernig áhrif það hefði á íslenskt samfélag. Eiríkur telur að Íslendingar ættu að leggja áherslu á að fá flýtimeðferð í undirbúningi að upptöku evru með það að markmiði

„Að fá Seðlabanka Evrópu í Frankfurt til þess að hjálpa okkur að tryggja skiptigengi krónunnar á við evru og það verði gert um leið og samningur verði undirritaður," segir Eiríkur.

Íslenska samninganefndin sem fer með aðildarviðræður hefur enn ekki verið skipuð en hún þyrfti að fara fram á fyrirkomulagið. Eiríkur telur mögulegt að það gæti komið til framkvæmda ári áður en þjóðin gengi í sambandið. En samningaferli tæki um tvö ár.

„Mér sýnist á þeim samtölum sem ég ég hef átt í við ýmsa fulltrúa Evrópusambandsins í Brussel að það gæti verið möguleiki að búa til einhverja sérstaka lausn fyrir Ísland einfaldlega vegna þeirrar fordæmalausastöðu sem hér er komin upp," segir Eiríkur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×