Innlent

Fyrirtæki uggandi - fundað um stöðugleika í kvöld

Mörg fyrirtæki eru uggandi yfir óvissu á vinnumarkaði og sjá ekki fyrir hvernig unnt verður að greiða út launahækkanir. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins útiloka ekki að til átaka geti komið ef ekki næst saman um stöðugleikasáttmála.

ASÍ og SA hafa átt í viðræðum um sérstakan stöðugleikasáttmála, en að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ hanga þær nú á bláþræði. Helsta þrætueplið eru launahækkanir sem krafist er að komi til 1. júlí, í samræmi við kjarasamninga, en Samtök atvinnulífsins vilja slá þeim á frest.

„Það er ekkert svigrúm en við erum að reyna að búa til eitthvert ljós í myrkrinu. ekki bara fyrir starfsfólkið heldur líka fyrir fyrirtækin. Hvernig hægt er að reka fyrirtækin áfram á Íslandi," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins.

Margt hangir á spýtunni, segir Vilhjálmur, ekki síst aðgerðir stjórnvalda í ríkisfjármálum, vaxtalækkun, viðunandi bankastarfsemi, afnám gjaldeyrishafta og aðgangur að erlendu lánsfé, svo fátt eitt sé nefnt.

Viðræðuaðilum hefur verið kynnt staðan í fjármálum ríkisins og sagðist fjármálaráðherra - í samtali við fréttamenn í dag - vona að menn næðu saman, stöðugleiki á vinnumarkaði væri gríðarlega mikilvægur og ekki á óvissuþættina bætandi.

Samráðsfundur verður haldinn með forystumönnum stjórnvalda í kvöld og er enginn á því að gefast upp fyrr en í fulla hnefana.

„Við höldum okkar striki og reynum þangað til í ljós kemur að þetta er ekki hægt," segir Vilhjálmur.

Viðræðuaðilar gera sér hins vegar grein fyrir því að brugðið getur til beggja vona.

„Ég held að yrði mjög óheppilegt ef við næðum ekki saman. Ég get fullvissað þig um það að það eru mörg fyrirtæki uggandi yfir framhaldinu. Menn sjá það ekki fyrir hvernig þeir geti greitt út launahækkanir. Skiptir mjög miklu máli að allur pakkinn gangi upp," segir Vilhjálmur.

Spurður hvort Vilhjálmur óttist að til átaka kunni að koma á vinnumarkaði svarar hann: „Ég geri mér grein fyrir þvi að það er alveg hugsanlegt já."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×