Tvær bækur heita Hjartsláttur 9. nóvember 2009 02:00 Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur og Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur gefa bæði tvö út bækur sem bera nafnið Hjartsláttur. Þau eru sammála um að markhópar þeirra gætu haft gaman af hinni bókinni líka enda sé hjartsláttur sammannlegur.
Tvær bækur sem koma út fyrir þessi jól bera sama nafnið, Hjartsláttur. Annars vegar er um að ræða ævisögu Hjálmars Jónssonar dómkirkjuprests og hins vegar unglingabók Ragnheiðar Gestsdóttur. Báðir rithöfundarnir eru sammála um að þetta gæti kannski leitt til skemmtilegs misskilnings, gæti svo farið að óharðnaður unglingur fengi bók um miðaldra prest og einhver af eldri kynslóðinni sögu af ást á örlagatímum. „Svo segja menn að það sé ekki samkeppni á milli forlaga, þetta er bara skýrasta dæmið um að það er bullandi samkeppni á þessum markaði,“ segir Hjálmar og rifjar upp nokkuð skondna sögu í þessu samhengi. „Þannig var að þegar ég var að fermast þá hét fermingakverið Vegurinn. Eitt fermingasystkinanna fór og keypti það en fannst það heldur dýrt. Enda hafði það keypt reyfara sem hét Gatan.“ Hjálmar leyfir sér þó ekki að efast um að unglingar geti haft gaman af bókinni sinni. „Ég fer reyndar ekkert yfir unglingaástina en bernskan er þarna, þetta er ekki bara bók um gamlan klerk.“ Hjálmar segir sinn hjartslátt dreginn af því að slíkur sláttur hafi fylgt honum alla tíð. „Ég var mjög feiminn sem barn, stamaði og var óframfærinn og því fór hjartað að slá ögn örar þegar maður var kallaður upp í tímum,“ útskýrir Hjálmar og svo sé það hin ástæðan: „Svo var ég tekinn í hjartaaðgerð fyrir nákvæmlega fimm árum, samdi reyndar ljóð sem hét hjartalag og var að íhuga að kalla bókina það,“ en hjartsláttur varð ofan á. Ragnheiður segist hafa fengið nokkrar ábendingar um þessa skemmtilegu tilviljun. „Já, þetta er mjög skrýtið og nei, það er ekkert sjálfsævisögulegt í minni bók. Sagan er bæði gömul og ný, þetta er um unga elskendur sem eiga ekki að fá að njótast,“ útskýrir Ragnheiður. Hennar hjartsláttur vísar að sjálfsögðu til ástarinnar en einnig búsáhaldabyltingarinnar sem er umhverfi sögunnar. „Sá taktur sem þar var sleginn var hjartsláttur þjóðarinnar og þeirrar frelsisþrár sem þarna kviknaði,“ útskýrir Ragnheiður og bætir því við að það sé kannski ekkert óeðlilegt að tvær bækur með þessu heiti skuli koma út. „Við erum öll manneskjur og þetta sameinar okkur öll, hjartslátturinn.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Fleiri fréttir Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Sjá meira