Innlent

Vilja sameina þjóðir Evrópu með lestarsmíð

Aðalsteinn ásamt nemendum úr Borgarholtsskóla.
fréttablaðið/stefán
Aðalsteinn ásamt nemendum úr Borgarholtsskóla. fréttablaðið/stefán

Nemar við málmdeild Borgarholtsskóla eru nú í óða önn að ljúka við gerð líkans af lestarteinum sem hefur tekið tvö ár að smíða. Þeir fylgja sérstöku lestarlíkani sem er samvinnuverkefni 24 evrópskra skóla og verður frumsýnt í húsakynnum Evrópusambandsins í Brussel í næstu viku.

„Skólunum var skipt í þrjá hópa sem fengu það verkefni að smíða lestarvagna eða -teina, sem tákna sameinaða Evrópu,“ segir Aðalsteinn Ómarsson, kennari og umsjónarmaður verksins hérlendis. Hann er ánægður með framvindu þess og segir þjóðirnar hafa lært ýmislegt af samstarfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×