Leikmenn Arsenal íklæddir dýrabúningum að safna áheitum (myndband) Ómar Þorgeirsson skrifar 19. nóvember 2009 12:30 Cesc Fabregas lét á dögunum gott af sér leiða ásamt liðsfélögum sínum í Arsenal. Nordic photos/AFP
Fjórmenningarnir Cesc Fabregas, Theo Walcott, Andrey Arshavin og Bacary Sagna hjá Arsenal létu nýlega gott af sér leiða og skiptu út fótboltagallanum fyrir loðna dýrabúninga til þess að safna áheitum í miðborg Lundúna fyrir Great Ormond Street barnaspítalann. Hægt er að sjá myndband af leikmönnunum í söfnunarferðinni með því að smella hér. Allir leikmenn Arsenal gáfu jafnframt virði dagslauna sinna í söfnunina en Arsenal stefnir á að safna 500 þúsund pundum í söfnunina sem munu nýtast til tækjakaupa og til þess að bæta þjónustu barnaspítalans. „Ég hvet stuðningsmenn Arsenal sem og alla aðra til þess að gefa það sem þeir geta í söfnunina. Ég hef heimsótt Great Ormond Street barnaspítalann og veit hversu mikilvæg söfnunin er fyrir krakkana og foreldra þeirra," sagði fyrirliðinn Fabregas og knattspyrnustjórinn Arsene Wenger, sem tók einnig virkan þátt í átakinu og á óneitanlega leiksigur í myndbandinu, tók í sama streng. „Við vitum hversu mikilvægt það er að barnaspítalinn fái nýjan tækjakost og því hvetjum við alla til að gefa í söfnunina," sagði Wenger.
Mest lesið Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane Sjá meira