Sorphirðugjöld hækka um allt að 50 prósent 24. febrúar 2009 10:53 Henný Hinz.
Útsvar í fjölmennustu sveitarfélögum landsins hækkaði í flestum sveitarfélögum í fyrra. Þá hækkaði sorphirðugjald og vatnsgjald víða. Hækkunin á sorphirðugjaldi hækkaði um allt að 50%. Þetta kemur fram í úttekt verðlagseftirlits ASÍ sem tekið hefur saman upplýsingar um breytingar á útsvari og álagningu fasteignagjalda í 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins á árinu 2009. ,,Heillt á litið eru fasteignagjöld hjá flestum ekki að hækka en það eru liðir eins og sorpið og vatnið sem eru að hækka mikið víða," segir Henný Hinz hagfræðingur hjá ASÍ í samtali við fréttastofu. Sorphirðugjald er hæst á Ísafirði Sorphirðugjald er hæst á Ísafirði eða 37.800 krónur á íbúð og lægst í Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi, 14.000 krónur, sem er ríflega 97% munur. Sorphirðugjaldið hækkar milli ára í öllum sveitarfélögunum nema Reykjavík, Reykjanesbæ, Fljótsdalshéraði og Seltjarnarnesi. Mesta hækkunin er í Skagfirið þar sem gjaldið hækkar um 50% frá fyrra ári. Á Akureyri og Akranesi hækkar sorphirðan um 35% og í Mosfellsbæ um 22%. Fasteignagjöld Umtalsverð hækkun á fasteignagjöldum undanfarin ár kom til vegna þess að fasteignamat hækkaði mikið, að sögn Hennýjar. ,,Það hefur valdið mikilli hækkun á þeim gjöldum sem fasteignaeigandinn hefur endanlega borgað jafnvel þó að sveitarfélögin hafi ekki hreyft við neinu," segir Henný.Fasteignaskattur víða óbreyttur Í úttekt ASÍ kemur fram að fasteignaskattur er víðast óbreyttur frá fyrra ári en hækkar mest í Skagafirði um 16,5% og á Akureyri um 14%, að teknu tilliti til breytinga á fasteignamati. Árborg er eina sveitarfélagið sem lækkar álagningarhlutfall fasteignaskatts á milli ára, en á móti vegur að fasteignarmat íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu hækkar um 5%. Að teknu tilliti til þessa lækkar fasteignaskattur í Árborg um 3,5% frá fyrra ári.Holræsagjald hækkar mest á Akranesi Holræsagjald hækkar mest á milli ára á Akranesi, um 27%, í Kópavogi um 25% og í Vestmannaeyjum um 10%, að teknu tilliti til breytinga á fasteignamati. Á Akureyri lækkar holræsagjaldið um 12% vegna lækkunar á álagningarhlutfalli sveitarfélagins. Vatnið hækkar mest í Reykjavík, á Akranesi og í Kópavogi Vatnsgjald er hjá flestum sveitarfélögum innheimt sem hlutfall af fasteigamati en í Reykjavík, á Akureyri, Akranesi og í Vestmannaeyjum er innheimt fermetragjald auk fastagjalds fyrir notkun. Vatnsgjaldið hækkar mest á milli ára í Reykjavík og á Akranesi um 27%. Í Kópavogi hækkar vatnsgjaldið um 25%, á Akrueyri um 15% og í Reykjanesbæ um 9% vegna hærri álagningar sveitarfélagsins. Í Hafnarfirði lækkar vatnsgjaldið á milli ára vegna 13% lækkunar á álagningu sveitarfélagsins og í fjölbýlishúsum í Hafnarfirði bætist við lækkun á fasteigamati sem gerir það að verkum að vatnsgjaldið lækkar um 17%.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent