65 ára gamall maður dæmdur fyrir kynferðisbrot 24. febrúar 2009 16:23
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær 65 ára gamlan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir nauðgun með því að hafa haft samræði við konu sem ekki gat spornað við þeim sökum andlegra annmarka sinna. Maðurinn hafði ekki samræði við konuna og krafðist því sýknu. Hann sagðist einnig fyrir dómi ekki hafa vitað að konan væri haldin andlegum annmörkum. Í ákæru segir að maðurinn hafi nuddað kynfæri konunnar í skrifstofuhúsnæði sínu í Reykjavík. Annaðhvort með kynlífstæki og sett tækið inn í leggöng hennar, eða með því að nudda með fingrum og setja fingur inn í leggöng konunnar. Þar segir ennfremur að við kynferðismökin hafi maðurinn notfært sér það að konan gat ekki spornað við þeim sökum andlegra annmarka. Líkt og fyrr segir neitaði maðurinn sök og byggði meðal annars sýknukröfu sína á því að hann hafi ekki haft nein kynferðismök við konuna umrætt kvöld né hafi honum verið um það kunnugt að hún væri haldin andlegum annmörkum. Í skýrslutöku og fyrir dómi sagði konan að maðurinn hefði stungið einhverskonar tæki í klofið á sér og nuddað kynfæri hennar með því. „Lýsti hún því fyrir dóminum að aðdragandi þessa hefði verið sá að ákærði hefði sagst ætla ,,eitthvað að gera fyrir" hana og hún þá háttað sig eins og hún væri „vön að gera fyrir hann". Framburður mannsins hvað þetta varðar var hinsvegar nokkuð á reiki. Þannig lýsti hann því hjá lögreglu að kærandi hefði afklæðst og boðið honum að hafa mök við sig. Hefði hann í fyrstu verið hálftregur en svo reynt en ,,það bara dugði ekkert". Hins vegar kannaðist hann aðspurður ekkert við græna tækið, en kvaðst hafa reynt að nota græna verju sem hann hefði sett upp á puttann og verið eitthvað að reyna að „hjálpa henni með puttanum". Væri þessi græna verja hugsanlega tækið sem kærandi hefði talað um. Núningsáverkar voru á kynfærum konunnar við skoðun á neyðarmóttöku. Framburður mannsins þótti ótrúverðugur á meðan framburður konunnar þótt staðfastur og um flest skýr og greinargóður. „Að þessu virtu telur dómurinn sannað að ákærði hafi í greint sinn nuddað kynfæri kæranda og að það hafi hann gert með fingrum eins og ráða má af framburði hans sjálfs. Hins vegar telst sönnun ekki komin fram um að ákærði hafi beitt kynlífstæki í því skyni eða stungið því eða fingri inn í kynfæri hennar," segir í dómnum. Maðurinn var því sem fyrr segir dæmdur í 15 mánaða fangelsi auk þess sem honum var gert að greiða sakarkostnað upp á rúmar 1300.000 krónur.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Fleiri fréttir Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sjá meira