Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu áhrif á ákvörðun um hryðjuverkalög 24. febrúar 2009 20:59
Davíð Oddsson seðlabankastjóri telur að það hafi haft mikil áhrif á bresk stjórnvöld að fé var flutt úr dótturfélagi Kaupþings, sem var undir bresku eftirliti. Þetta sagði Davíð þegar að hann var inntur eftir svörum í Kastljósi við því hvað hefði orðið til þess að Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn Íslandi. Davíð sagði að fyrst þetta hefði gerst þá hefðu menn talið að þetta gæti gerst í stofnunum sem lutu ekki bresku eftirliti. Davíð sagði að hafa þyrfti í huga að lögunum hefði verið beitt gegn Landsbankanum, en Landsbankinn í Bretlandi heyrði undir bankann á Íslandi. Davíð sagðist vita að fyrst hafi verið millifærðar 400 milljónir sterlingspunda úr dótturfélagi Kaupþings, næst 800 milljónir sterlingspunda og svo hærri upphæð. Þá sagði Davíð að Seðlabankinn hefði ef til vill átt að leggja minni áherslu á að ná niður verðbólgu og leggja meiri áherslu á það að gengið færi ekki of hátt árið 2006. Það hefðu ef til vill verið mistook að gera það ekki. Enginn af þeim sem núna væri að gagnrýna Seðlabankann hefði hins vegar haft orð á þessu á þeim tíma. Það væri auðvelt að vera vitur eftirá. Þá sagði Davíð að það hafi verið hann sem benti yfirvöldum á að emírinn frá Katar væri í blekkingarviðskiptum með Kaupþing. Það hafi meðal annars orðið til þess að breytingar voru gerðar á skilanefnd Kaupþings.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Fleiri fréttir Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Sjá meira