Innlent

Meirihluti vill afturkalla kvóta

Mynd úr safni
Mynd úr safni

62,5 prósent segjast vilja afturköllun núgildandi aflaheimilda, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 37,5 prósent eru því mótfallin.

Nokkur munur er á afstöðu fólks eftir bæði kyni og búsetu. Konur eru mun frekar fylgjandi afturköllun aflaheimilda en karlar. 68,0 prósent þeirra eru því hlynnt, en 58,2 prósent karla. Þá eru 69,1 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu hlynnt því að kvóti verði afturkallaður, en 52,5 prósent íbúa á landsbyggðinni.

Mikill meirihluti kjósenda Samfylkingar og Vinstri grænna er hlynntur afturköllun veiðiheimilda. 79,7 prósent kjósenda Samfylkingar og 77,2 prósent kjósenda Vinstri grænna.

Meirihluti kjósenda Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er hins vegar andvígur því að aflaheimildir verði afturkallaðar; 58,6 prósent kjósenda Framsóknarflokks styðja ekki slíka afturköllun og 68,5 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks eru því mótfallin.

Af þeim sem ekki gefa upp stuðning við stjórnmálaflokk segjast 63,1 prósent vera hlynnt afturköllun kvóta, en 36,9 prósent eru því andvíg.

Hringt var í 800 manns þriðjudaginn 14. apríl og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var; Á að afturkalla núgildandi aflaheimildir? 76,8 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar.




Tengdar fréttir

Borgin hirðir ekki garðaúrgang

Reykjavíkurborg mun ekki losa borgarbúa við garðaúrgang í ár, eins og verið hefur mörg undanfarin ár. Borgarbúar verða því sjálfir að losa sig við garðaúrgang og greinar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×