Sveppi 2 á teikniborðinu 26. september 2009 05:00 Stórvinirnir mæta til leiks Þeir Auðunn Blöndal og Hugi Halldórsson voru að sjálfsögðu meðal gesta og drógu ungviðið með sér inn í kvikmyndasali Sambíóanna.
Kvikmyndin Algjör Sveppi og leitin að Villa var frumsýnd á fimmtudagskvöldið. Fjöldi ungmenna lagði leið sína í Álfabakka til að fylgjast með því þegar margar skærustu stjörnur barnanna gengu inn í kvikmyndahúsið eftir rauðum dregli. „Þetta var alveg hrikalega flott og alveg meiri háttar skemmtilegt. Ég gæti ekki verið ánægðari,“ segir Sverrir Þór í samtali við Fréttablaðið. Hann upplýsir að mynd númer tvö sé í smíðum og reyndar fá þolinmóðir kvikmyndahúsagestir nasasjón af því sem koma skal. „Það kemur brot úr næstu mynd á eftir kreditlistanum.“ Sverrir & co eru augljóslega ekkert að tvínóna við hlutina og ætla að leggjast í handritsskrif þegar frumsýningarhelgin er liðin. Sverrir kveðst ekki að halda bíómyndin muni gera hann ríkan eða hjálpa honum að greiða niður myntkörfulánið. „Ég efast um það, þetta er aðallega gert til að gleðja börnin. Mynd númer 2 verður hugsuð til að græða og greiða niður þetta lán,“ segir Sverrir og skellihlær. Annars kveðst hann eiginlega vera í skýjunum yfir þessu öllu; honum þyki nefnilega svo ótrúlega skemmtilegt að horfa á sjálfan sig á hvíta tjaldinu. „Það er alveg rosalegt kikk að líta yfir fullan sal af fólki sem er að horfa á eitthvað rugl eftir mann,“ segir Sverrir sem svífur augljóslega um á bleiku skýi. - fgg Mikil spenna Þessi drengir áttu erfitt með að hemja spennuna og eftirvæntinguna þegar þeir biðu eftir því að komast inn í bíóið til að horfa á Algjöran Sveppa. í Vondum félagsskap Skoppa og Skrítla hafa eflaust kennt ræningjunum úr Kardimommubænum sitthvað um hvað er rétt og hvað er rangt. Íþróttaálfurinn alltaf vinsæll Ein helsta útflutningsafurð Íslands, Íþróttaálfurinn, mætti á svæðið. Ekki var það þó Magnús Scheving sem klæddist bláa búningnum heldur staðgengill hans. Ný kynslóð Einhverjar vinsælustu stjörnur barnatímans Stundarinnar okkar mættu á svæðið, þeir Gunni og Felix. Og nú er spurt; eru Vilhelm Anton og Sverrir Þór arftakar þeirra?fréttablaðið/Valli
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira