Tillögu Ólafs varðandi Eykt vísað frá 29. október 2009 13:02
Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi lagði í dag fram tillögu þess efnis í borgarráði að skorað yrði á byggingarfélagið Eykt að upplýsa um framlög sín og styrki til stjórnmálasamtaka sem buðu fram í síðustu borgarstjórnarkosningum. Ólafur vildi jafnframt að upplýst yrði hvaða frambjóðendur í prófkjörum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar fengu styrki frá félaginu og hvort aðrir styrkir hafi runnið til frambjóðenda og kjörinna fulltrúa í borgarstjórn á þessu kjörtímabili. Tillögunni var vísað frá með atkvæðum borgarráðsmanna Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Fulltrúi Vinstri grænna í borgaráði sat hins vegar hjá. Tillagan var fram komin vegna frétta þess efnis að Eykt hafi verið fengið til að annast uppsteypu brunahúsanna svokölluðu í Austurstræti án þess að hafa átt lægsta tilboð í verkið. Framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Fonsa sakaði framsóknarmenn nýverið í fréttum Stöðvar 2 um pólitíska spillingu og sóðaskap í tengslum við útboðið og útilokaði ekki að málið yrði kært, en Fonsi átti lægsta tilboðið í verkið. Eykt átti næst lægsta tilboðið og fékk verkið þar sem tilboð Fonsa þótti ekki uppfylla reglur útboðsins. Að sögn Ólafs voru rök meirihlutans fyrir frávísun þau að verið væri að vinna í málum af þessu tagi í borgarkerfinu. Ólafur segir þau rök með öllu ófullnægjandi og að þrátt fyrir frávísun muni hann ekkert gefa eftir með það að fá allt upp á borðið varðandi tengs Eyktar við Reykjavíkurborg.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Sjá meira