Verksmiðja sem breytir mengun í eldsneyti rís í Svartsengi 6. október 2009 18:42
Byltingarkennd verksmiðja, sem breytir útblæstri jarðgufuvirkjana og álvera í metanól, verður reist í Svartsengi og verður fyrsta skóflustunga tekin í næstu viku.Hver gæti trúað því að verðmæti gætu falist í stróknum sem stígur upp frá virkjunni í Svartsengi? Greinilega hluthafarnir fjörutíu í félaginu Carbon Recycling International, sem eftir þriggja ára undirbúning setja einn milljarð króna í smíði verksmiðju sem verður einstök í heiminum.Tilraunaverksmiðja hefur verið rekin í eitt og hálft ár í kjallara Háskólans í Reykjavík á Höfðabakka í samvinnu íslenskra og erlendra vísindamanna, undir stjórn bandaríkjamannsins Kims Tran, en meðal ráðgjafa er bandarískur nóbelsverðlaunahafi í efnafræði. Verksmiðjan mun nota koltvísýring úr borholum Svartsengis til að framleiða metanól, öðru nafni tréspíritus, sem meðal annars er notað sem íblöndunarefni í bensín en einnig beint sem eldsneyti.Aðstandendur félagsins segja að framleiðslan muni vinna gegn loftlagsvanda heimsins. Sindri Sindrason, stjórnarformaður Carbon Recycling International, segir að meira sé notað af koltvísýringi í framleiðslu metanólsins en sem myndast við bruna þess þegar það er notað sem eldsneyti. Fleiri mengunarvaldar koltvísýring hérlendis gætu gagnast, og kannski aukið losunarkvóta Íslands, en vinna má hann úr útblæstri frá álverksmiðjum og öðrum mengandi iðnaði.Milli 30 og 40 manns fá vinnu við smíði verksmiðjunnar en þar munu síðan starfa 5-6 manns við framleiðsluna. Verksmiðjan á að framleiða fimm milljónir lítra þegar hún tekur til starfa eftir eitt ár og síðan er áformað að byggja enn stærri verksmiðju. Hugmyndin er að græða á öllu saman og segir Sindri dæmið líta glettilega vel út. Þeir væru ekki að þessu nema þeir sæju af þessu fjárhagslegan ávinning.
Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Sjá meira