Biðlisti eftir föstum básum í Kolaporti 19. október 2009 03:00 Fjöldi manns leggur leið sína í Kolaportið um hverja helgi til að gera góð kaup, sýna sig og sjá aðra. Fréttablaðið/Valli
viðskipti Stóraukin ásókn er í sölupláss í Kolaportinu í Reykjavík, að sögn Gunnars Hákonarsonar, framkvæmdastjóra Kolaportsins. Hann segir þó erfitt að leggja tölulegt mat á aukninguna, þar sem alla jafna hafi verið skipað í öll pláss. Hann finni þó fyrir því að pláss sem losna séu tekin mun fyrr en áður. Flestir sölubásarnir í Kolaportinu eru leigðir til lengri tíma, en svo er jafnframt hægt að leigja pláss yfir helgi eða daglangt. „En við erum jú með takmarkað magn af básum og núna fyllist þetta mun hraðar.“ Þá er allangur biðlisti eftir því að komast í sölupláss til lengri tíma, en Gunnar telur minna að byggja á lengd hans. „Þegar til kemur er svo ekki nema einn af tíu sem hefur skráð sig sem vill taka plássið. Fólk segist þá hafa hætt að gera ráð fyrir því að fá úthlutað.“ Alla jafna er hægt að panta sölupláss mánuð fram í tímann, en á vef Kolaportsins kemur fram að allir sölubásar séu upppantaðir út nóvembermánuð. Þótt vera kunni að rekja megi aukna ásókn í sölupláss í Kolaportinu til efnahagsástandsins segir Gunnar ekki hægt að merkja breytingu á þeim varningi sem fólk hefur til sölu. Kolaportið var fyrst opnað árið 1989 í bílastæðageymslu bílastæðasjóðs í Seðlabankanum, en starfsemin flutti í neðstu hæð Tollhússins við Tryggvagötu í Reykjavík árið 1994.- óká
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira