Stuðningur við stjórnina eykst lítillega 19. október 2009 05:30
Stuðningur við ríkisstjórnina hefur aukist lítillega á síðustu mánuðum samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins, en stjórnin mælist enn með stuðning minnihluta kjósenda. Um 45,5 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnun sem gerð var á fimmtudagskvöld sögðust styðja stjórnina, en hlutfallið var 43 prósent í sambærilegri könnun sem gerð var 28. júlí. „Þetta er innan skekkjumarka frá síðustu könnun og segir sömu sögu; stjórnin er í erfiðum málum," segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann álítur að stuðningur við ríkisstjórn hafi líklega ekki mælst minni í könnunum, en óeðlilegt væri ef vandasöm viðfangsefni og innri sundurþykkja hefðu ekki sín áhrif. „Þetta er ekki of gott en það eru erfiðir tímar," segir hann. Fleiri konur en karlar styðja ríkisstjórnina. Um 47,8 prósent kvenna sögðust styðja stjórnina, en 43,4 prósent karla. Höfuðborgarbúar eru jákvæðari gagnvart stjórninni en fólk sem býr á landsbyggðinni. Alls sagðist 48,1 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins styðja stjórnina, en 41,8 prósent þeirra sem búa á landsbyggðinni. Eins og áður er yfirgnæfandi stuðningur við stjórnina meðal stuðningsmanna Samfylkingar og Vinstri grænna, 93 prósent annars vegar og 85 prósent hins vegar. Aðeins 3,7 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks styðja stjórnina, og tólf prósent framsóknarmanna. Hringt var í 800 manns fimmtudaginn 15. október. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var: Styður þú núverandi ríkisstjórn? Alls tóku tæplega 88 prósent aðspurðra afstöðu til spurningarinnar.- bj, bþs
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira