Innlent

Sérsveitin flytur á Miðnesheiði

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Ellisif Tinna Víðisdóttir forstjóri Varnarmálastofnunar.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Ellisif Tinna Víðisdóttir forstjóri Varnarmálastofnunar.

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, hafa undirritað samning um afnot ríkislögreglustjóra að mannvirkjum á mannvirkjaskrá Atlantshafsbandalagsins.

Samningurinn gerir það að verkum að Sérsveit Ríkislögreglustjóra mun flytja æfingaaðstöðu sína frá Hvalfirði þar sem hún hefur verið í mörg ár og á nýtt svæði á Miðnesheiði. Ríkislögreglustjóri fær alls til afnota fimm byggingar og afmarkað svæði á Miðnesheiði sem einnig myn nýtast lögreglunni í landinu og Lögregluskólanum.

Í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra segir að samningurinn skapi lögreglunni ný tækifæri til margs konar æfinga og aukins samstarfs við Landhelgisgæslu Íslands, sem hefur einnig aðstöðu á Miðnesheiði, samkvæmt fyrirliggjandi samstarfssamningi ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar um löggæslu, björgun og almannavarnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×