Stutt á milli gríns og drama 24. september 2009 05:00 Bandaríski leikstjórinn hefur sent frá sér myndina Funny People.
Þriðja kvikmynd bandaríska leikstjórans Judds Apatow, Funny People, verður frumsýnd á morgun. Í símaviðtali við Fréttablaðið segir hann að jafnvel alvarlegustu augnablik lífsins séu fyndin. Judd Apatow sló í gegn með sinni fyrstu mynd, The 40 Year Old Virgin og fylgdi henni vel á eftir með Knocked Up. Hann er í dag einn áhrifamesti leikstjóri og framleiðandi gamanmynda í Hollywood en í Funny People kveður við alvarlegri tón, þótt grínið sé aldrei fjarri. Myndin fjallar um vinsælan leikara og uppistandara (Adam Sandler) sem þykir full sjálfselskur og upptekinn af frægðinni. Eftir að hann kemst að því að hann er haldinn banvænum sjúkdómi kynnist hann ungum og upprennandi grínista (Seth Rogen) og býðst til að gerast aðstoðarmaður hans. Fyndin en alvarleg mynd„Mig langaði að gera mynd um alvarlegt viðfangsefni þar sem atburðir gerast hjá náunga sem horfir á lífið með gamansömum augum, fyndna mynd um viðfangsefni sem er vanalega ekki mjög fyndið,“ segir Apatow. Hann vill ekki meina að það sé erfiðara að semja dramatísk atriði heldur en fyndin. „Jafnvel alvarlegustu augnablik lífsins eru fyndin. Mér finnst vera þunn lína á milli gríns og dramatíkur, að minnst kosti í mínu lífi. Ég hugsa aðallega um að semja eitthvað sem kemur frá hjartanu, þannig að ef ég sem bara um eitthvað sem er satt og rétt þá kemur það oftast út á fyndinn hátt.“ Slapp með skrekkinn í skjálftaAðalpersóna Funny People kemst afar nálægt dauðanum í myndinni. Apatow slapp sjálfur með skrekkinn þegar stór jarðskjálfti gekk yfir Kaliforníu árið 1993. „Ég hafði nýkeypt mér hús en ég flutti ekki strax inn í það því ég vildi mála það fyrst. Eftir jarðskjálftann skoðaði ég húsið og sá að þakið yfir svefnherberginu hafði hrunið og múrsteinar voru úti um allt,“ segir hann. „Ég hefði örugglega dáið ef ég hefði verið þarna þessa nótt. Ég kunni betur að meta lífið eftir að þetta gerðist, en bara í svona fjóra daga á eftir,“ segir hann og hlær. „Ég hef áhuga á fólki sem lærir lexíu en lætur lærdóminn síðan fjara út, einfaldlega vegna þess að það er auðveldara að lifa lífinu þannig. Það er að hluta til það sama og myndin gerir. Hún sýnir einhvern fara í gegnum reynsluna við að veikjast, fá síðan heilsuna á nýjan leik og vita ekki hvernig hann á að vinna úr því. Hann áttar sig ekki á því hver forgangsatriðin eiga að vera því að jafnvel þótt þú læknist af sjúkdómi ertu alltaf jafnklikkaður og áður. Þetta er mikil áskorun fyrir fólk og maður sér ekki oft fjallað um þetta í bíómyndum. Venjulega í myndum þá er náunginn leiðinlegur, veikist og verður síðan dýrlingur en hlutirnir eru bara flóknari en svo.“ Sandler kom á óvartAdam Sandler, sem fer með aðalhlutverkið, hefur framleitt og samið handritið að mörgum vinsælum myndum. Apatow er ánægður með hversu mikill fagmaður hann var. „Hann sagðist í byrjun ætla að leggja sjálfan sig í mínar hendur og láta mig um þetta. Hann stóð við loforðið og það kom mér mjög á óvart. Við höfum verið vinir í tuttugu ár en ég hef aldrei unnið svona náið með honum. Mér fannst flott hversu þroskaður hann er orðinn.“ Vill heimsækja ÍslandApatow er kvæntur einni af aðalleikkonum myndarinnar, Leslie Mann. Samt virðast hjónabönd ekki vera hátt skrifuð í myndum hans og hann hefur skýringu á því. „Ég myndi ekki borga fyrir að sjá bíómynd um tryggt hjónaband. Það kemur ekkert grín út úr hamingjusömum aðstæðum heldur miklu frekar úr vandamálum. Fólk spyr mig af hverju persónurnar í myndunum mínu séu vanþroskaðar karlrembur. Ég vil sýna fólk í kringumstæðum þar sem það veit ekki hvernig það á að haga sér. Venjulegt fólk er bara ekki skemmtilegt í bíómyndum.“ Spurður hvort hann hefði einhvern tímann áhuga á að heimsækja Ísland hafði Apatow þetta að segja: „Ég hefði mjög gaman af því að koma til Íslands. Ég hef beðið lengi eftir þessu boði,“ segir hann hress. „Eitt það skemmtilegasta við að gera svona myndir er að maður getur ferðast um heiminn og og kynnt myndir í mismunandi löndum. Ef það er einhver kvikmyndahátíð þarna sem þarf á ræðumanni að halda er ég til.“freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Muniz skilinn Lífið Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Fleiri fréttir Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Sjá meira