Innlent

Gekk berserksgang í vesturbænum

Lögregla var í nótt kölluð að húsi í vesturbæ þar sem tilkynnt hafði verið um mikil læti. Þar hafði maður gengið berserksgang að sögn vitna en hafði forðað sér áður en lögregla kom á staðinn. Skömmu síðar fær lögreglan aftur hringingu og nú hafði maðurinn snúið aftur og var sagður vopnaður. Þegar lögreglumenn komu vettvang tók maðurinn á móti þeim vopnaður barefli sem hann hótaði að nota. Lögreglumennirnir beittu þá piparúða á ofbeldissegginn og yfirbuguðu. Hann gistir nú fangageymslur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×