Innlent

Hugsanleg saksókn yfirheyrslureglusmiða

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Ekki er útilokað að þeir embættismenn stjórnar George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem settu reglur um aðferðir við að yfirheyra grunaða hryðjuverkamenn verði sóttir til saka að undirlagi Baracks Obama forseta.

Obama tekur þó fram að þeir starfsmenn leyniþjónustunnar CIA sem framkvæmdu yfirheyrslurnar verði ekki saksóttir enda hafi þeir í raun ekki gert annað en að hlýða boðum yfirmanna sinna og þar með ekki gerst brotlegir. Þeir sem eiga yfir höfði sér hugsanlega málsókn eru þrír.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×