Innlent

Sneisafullar fangageymslur

MYND/GVA

19 gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt sem er óvenju há tala að sögn varðstjóra. Flestir þurftu að sofa úr sér ölvímu en fjórir voru handteknir við innbrot.

Brotist var inn í Öskjuhlíðarskóla í nótt og í tengslum við það mál voru tveir handteknir. Þá var brotist inn á pizzastað á Dalvegi í Kópavogi en lögregla handsamaði þjófanna einnig í því tilfelli en um tvo menn var að ræða. Þá voru tveir teknir á höfuðborgarsvæðinu í nótt grunaðir um ölvunarakstur.

Varðstjóri hjá lögreglunni sagðist ekki muna eftir öðrum eins fjölda í fangageymslum eins og í nótt og þurfti að grípa til þess ráðs að taka varageymslur sem lögreglan hefur í Hafnarfirðinum í notkun til þess að rúma alla þá sem þörfnuðust gistingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×