Innlent

Segja fyrningu aflaheimilda aðför að 32.000 fjölskyldum í landinu

Merki félags ungs fólks í sjávarútvegi.
Merki félags ungs fólks í sjávarútvegi.

Félag ungs fólks í sjávarútvegi segir að fyrning aflaheimilda sé aðför að 32.000 fjölskyldum í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar segir ennfremur að vinstriflokkarnir sem nú séu í framboði til Alþingis hafi það á stefnuskrám sínum að gera aflaheimildir sjávarútvegsfyrirtækja upptækar undir yfirskrift fyrningarleiðar.

Slík aðgerði kollvarpi því trausta og hagkvæma skipulagi sem ríkt hafi í sjávarútvegi um árabil og setji afkomu tugþúsunda einstaklinga um allt land í mikla óvissu. Þá eru stjórnmálamenn hvattir til þess að víkja snarlega frá hugmyndum um þjóðnýtingu aflaheimilda og taka þess í stað stöðu með þeim heiðarlegu og dugmikla vinnandi fólki sem starfi í sjávarútvegi

„90% aflaheimilda eru í höndum fyrirtækja sem keypt hafa heimildir sínar á markaði og fengu ekki aflaheimildum úthlutað við upphaf kerfisins 1984. Að gera þær heimildir upptækar með valdi er óréttlæti í sinni tærustu mynd og ábyrgðarhlutur af stjórnmálamönnum að leggja slíkt til. Óréttlátt er að refsa þeim sem keypt hafa aflaheimildir og byggt upp sterkasta sjávarútveg heims fyrir úthlutun stjórnmálamanna árið 1984. Sjávarútvegur er burðarstólpi í íslensku atvinnulífi og hefur síðastliðin 10 ár skapað um 60% allra útflutningstekna landsins," segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×