Bókelskur bófi: Stal óútgefnum Dan Brown frá Bjarti Valur Grettisson skrifar 13. október 2009 11:21 Týnda táknið er týnt. „
Það var tvennt sem þeir tóku, annars vegar tölvuskanni og svo þýðinguna að nýjustu bók Dan Brown," segir Guðrún Vilmundardóttir, útgáfustjóri Bjarts, en óprúttinn þjófur fór inn í húsnæði Bjarts á Bræðraborgarstígnum og stal skanna og glóðvolgu handriti að Týnda tákninu, nýjustu skáldsögu Browns. Hann er hvað frægastur fyrir að hafa skrifað Da vinci lykilinn. Þjófurinn náði að athafna sig í örfáar mínútur áður en ljósmyndari, sem vinnur í sama húsnæði, kom að honum og stökkti honum á flótta. Aðkoman var ljót að sögn Guðrúnar en allt var á rúi og stúi þegar starfsmenn Bjarts komu í vinnuna í morgun. Hún segist ekki viss en telur þó að ekkert annað sé horfið. Aðspurð hvort þetta muni seinka útgáfunni á bók Browns, sem er sú fyrsta sem hann skrifar síðan hann gaf út Da Vinci lykilinn, svarar Guðrún að hún voni að svo sé ekki. „Ég þarf að tala við lesarann en ég held að þetta hafi bara verið útprentun," segir Guðrún en handritið lá á borðinu hennar þegar bókelski þjófurinn tók það ófrjálsri hendi. Áætlað er að sagan verði prentuð síðar í mánuðinum og endi í jólapökkum landsmanna. Bókin er þegar kominn út á ensku en Guðrún segist allt eins telja að þjófurinn hafi í raun gefist upp á ensku útgáfunni, enda fléttan snúin, og í örvæntingu sinni stolið íslenska handritinu til þess að klára þessa æsispennandi sögu á móðurmálinu. Guðrún segir að starfsfólkinu sé dálítið brugðið eftir innbrotið en mikil innbrotsbylgja hefur riðið yfir landið undanfarna mánuði. „Það er einhvern veginn öðruvísi að lesa um innbrotin í blöðunum heldur en að verða fyrir því," segir Guðrún sem stefnir á að gefa hina eftirsóttu Dan Brown bók út fyrir jól. Þá geta þjófar jafnt sem heiðarlegir fengið hana í venjulegri bókaverslun.
Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Fleiri fréttir Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Sjá meira