Innlent

Innbrotsþjófur steinsofnaði

Mynd/Anton Brink
Eitthvað var hann þreyttur innbrotsþjófurinn sem lögreglan handtók í kjallara íbúðarhúss í miðborginni eftir hádegi í gær. Að minnsta kosti var hann steinsofandi þegar lögreglan kom á vettvang en erfiðlega gekk að vekja manninn, að sögn lögreglu.

Það var nágranni sem tilkynnti um þjófinn en hans hafði verið leitað frá því um morguninn en maðurinn er grunaður um annað innbrot í hverfinu. Þjófurinn, sem er á þrítugsaldri, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×