Innlent

Eldur í sumarbústað við Meðalfellsvatn

Tvö börn og tveir fullorðnir forðuðu sér út þegar eldur kom upp í sumarbústað við Meðalfellsvatn í Kjós laust fyrir klukkan eitt í nótt. Fólkið hringdi á slökkviliðið en tókst að halda eldinum í skefjum með vatni úr garðslöngu á meðan beðið var eftir slökkviliðinu. Það slökkti svo eldinn og reif vegg við kamínu, þar sem eldurinn hafði logað, til að slökkva endanlega í glæðum. Fólkinu varð ekki meint af reyknum, sem stafaði af eldinum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×