Hetjudáð Fjölnis Þorgeirssonar á Animal Planet 3. nóvember 2009 04:00 Hetja að störfum Fjölnir Þorgeirsson vakti heimsathygli þegar hann stökk út í kalda tjörnina og hóf björgunaraðgerðir.mynd/jens einarsson „
Þau höfðu víst séð þetta bæði á vefmiðlum og í fjölmiðlum og höfðu í kjölfarið samband við mig og vildu fá alla söguna. Þau ræddu einnig við Sigurbjörn Bárðarson og Sigga Sig og svo var gerður úr þessu sjónvarpsþáttur,“ segir kappinn Fjölnir Þorgeirsson, en sjónvarpsstöðin Animal Planet framleiddi þátt um björgunaraðgerðir Fjölnis þegar á annan tug hesta og knapa féllu niður um ís á Reykjavíkurtjörn. Fjölnir var á staðnum sem blaðamaður Hestafrétta og þótti honum björgunaraðgerðirnar ekki vera að bera árangur. Hann stökk því út í vatnið og tók stjórnina. Í þættinum er Fjölnir nefndur The Iceman, eða Ísmaðurinn, og hann sagður vera ástæðan fyrir því að ekki hafi farið verr. „Þetta var náttúrlega svaka ævintýri, bæði að hafa lent í þessu og að hafa verið á staðnum. Það var fullt af fólki sem hjálpaðist að þarna en ég tók kannski svolítið völdin og var þar af leiðandi gerður að einhvers konar hetju.“ Fjölnir segist hafa fengið þáttinn sendan til sín á mynddiski frá framleiðendunum og segir þáttinn vera ágæta afþreyingu. „Þetta var fínt hjá þeim, kannski full amerískt, en ágætur þáttur engu að síður. Það var samt ekki laust við að maður fengi smá aulahroll þegar maður horfði á þetta,“ segir Fjölnir sem ekki varð meint af volkinu í ískaldri tjörninni. „Nei, ég varð ekkert veikur eftir þetta. Ég varð hressari ef eitthvað er og fór beint heim og barnaði konuna.“ Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á vefsíðunni hestafréttir.is. - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira