Innlent

Þrír á slysadeild eftir harðan árekstur

Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt við húsvegg slysadeildarinnar, á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar, um klukkan ellefu í gærkvöldi.

Enginn þeirra meiddist alvarlega en bílarnir skemmdust svo mikið að það þurfti að fjarlægja þá með kranabílum. Tildrög slyssins voru þau að annar bíllinn tók U-beygju og fór í veg fyrir hinn bílinn. Loka þurfti Bústaðavegi um tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×