Leita læknis eftir neyslu orkudrykkja 2. nóvember 2009 03:00 Litlu orkuskotin af Burn er auðvelt að innbyrða en styrkur örvandi efna í þeim er mikill og því varasamt að drekka of mikið. Fréttablaðið/vilhelm
Töluvert er um að fólk leiti sér læknisaðstoðar eftir að hafa drukkið svokallaða orkudrykki. Þetta segir Ófeigur T. Þorgeirsson, yfirlæknir á slysa- og bráðasviði. Hann segir nauðsynlegt að fólk lesi innihaldslýsingar og virði ráðlagðan hámarksskammt. „Þetta eru mjög varasamir drykkir í of miklu og of hröðu magni,“ segir Ófeigur um orkudrykki almennt. Ákveðið var fyrir skömmu að banna neyslu orkudrykkja í félagsmiðstöðvum Kópavogs eftir að ungmenni höfðu gert sér að leik að fá sér marga í einu. Segir Arna Margrét Erlingsdóttir, verkefnisstjóri tómstundamála í Kópavogi, að sérstaklega séu lítil skot sem nýlega komu á markað varasöm. Þau er auðvelt að innbyrða hratt og í miklum mæli og geta afleiðingarnar orðið alvarlegar eftir því. Orkudrykkurinn sem rætt er um er svonefnt Burn orkuskot en í innihaldslýsingu frá Vífilfelli segir: „Getur innihaldið snefil af hnetum og jarðhnetum. Eitt skot (50 ml) á dag. Neysla má ekki fara yfir dagskammtinn. Geymist þar sem börn ná ekki til. Þessi vara er ekki fyrir börn undir 14 ára aldri, barnshafandi konur og persónur sem eru viðkvæmar fyrir koffeini. Notið ekki sem valkost á móti fjölbreyttu fæði. Blandið ekki saman við áfengi.“ Arna segir að komið hafi fyrir að krakkarnir hafi jafnvel drukkið þrjú svona glös á skömmum tíma. Ungmenni átti sig oft ekki á mikilvægi þess að kanna innihald og ráðlagðan dagskammt og haldi að þau verði uppfull af orku við að drekka mikið magn. Þau komist þó oft síðar að því að mikil vanlíðan er fylgifiskur ofskömmtunar. Meðal einkenna sem fólk kvartar yfir þegar það leitar sér aðstoðar hjá lækni vegna orkudrykkja segir Ófeigur vera: Hraður hjartsláttur, almenn vanlíðan, sviti, höfuðverkur og svo hár blóðþrýstingur, þótt fólk finni oftast ekki fyrir síðastnefnda einkenninu þá sé hár blóðþrýstingur óneitanlega algengur fylgikvilli orkudrykkjaþambs. Arna hefur sent bréf til allra foreldra 13 til 16 ára ungmenna vegna málsins og hvetur starfsmenn félagsmiðstöðva og foreldra alla til að hafa vakandi auga með þessu og ræða við unglingana um afleiðingar af ofneyslu þessara drykkja.karen@frettabladid.is Arna Margrét Erlingsdóttir verkefnisstjóri tómstundamála í Kópavogi, segir að ákveðið hafi verið að banna orkudrykkjaþamb eftir að ungmenni gerðu sér að leik að þamba marga drykki. Þau hafi haldið að þau yrðu ör og hress en mikil vanlíðan séu fremur einkenni ofskömmtunar. Fréttablaðið/vilhelm
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Fleiri fréttir Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Sjá meira