Fjallabræður í kreppumynd 6. október 2009 04:00 Fjallabræður í væntanlegri kreppumynd Gunnars Sigurðssonar. mynd/Gretar Þór Sæþórsson „
Þetta var klikkað, en dálítið kalt. Manni leist ekkert á þetta á tímabili og hélt að kórinn myndi steypast ofan í gjána“ segir Halldór Gunnar Pálsson, leiðtogi Fjallabræðra, en karlakórinn kemur fram í væntanlegri kreppukvikmynd Gunnars Sigurðssonar. Tökurnar fóru fram á Þingvöllum á laugardaginn. „Þetta voru rosa flottar tökur,“ segir leikstjórinn Gunnar ánægður, „flott veður og myndrænt.“ Atriði Fjallabræðra er þannig að andlitslaus útrásarvíkingur kemur á svörtum Hummer til að sættast við þjóðina á Þingvöllum. Þar hittir hann Fjallkonuna sem spilar á fiðlu og svo koma Fjallabræður gangandi inn í mynd á brún Almannagjár. „Í okkar fínasta pússi að sjálfsögðu og Magnús Þór í þjóðbúningi,“ en Magnús Þór er höfundur lagsins sem þeir syngja og heitir Freyja. Vinnsluheiti myndar Gunnars eru hin fleygu orð Geirs Haarde, „Maybe I should have“. „Það er eins með okkur alla, við hefðum átt að gera eitthvað,“ segir leikstjórinn. Gunnar kemst ekki á frumsýningun annarrar kreppumyndar, Guð blessi Ísland, í dag því hann er úti í London að taka efni. „Alistair Darling kemur til London í dag frá Tyrklandi og ég ætla að sitja fyrir honum. Á fimmtudaginn förum við svo til Guernsey, en þar hefur fólk farið illa út úr viðskiptum sínum við Landsbankann.“ Gunnar segir að myndin verði sennilega frumsýnd um mánaðamótin nóv/des. Fyrsta plata Fjallabræðra kemur svo út í byrjun nóvember.
Mest lesið Walking Dead-leikkona látin Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Terry Reid látinn Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum Menning „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Fleiri fréttir Walking Dead-leikkona látin Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Gekk hringinn í kringum landið fyrir vannærð börn í Afríku Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum „Mig langar ekki lengur að deyja“ Loni Anderson er látin „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Calvin Harris orðinn faðir Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Sjá meira