Berjasprettan gerist vart betri 21. ágúst 2009 03:00 Örn, lengst til vinstri, ásamt fríðum hópi listamanna á Berjadögum. Mynd/Ingibjörg
Berjadagar á Ólafsfirði hefjast í kvöld. Örn Magnússon skipuleggjandi hlær þegar blaðamaður spyr hann hvort hátíðin sé í keppni við Menningarnótt. „Ég sagði nú einhvern tíman að það yrði nú að vera eitthvað fyrir norðan líka svo landið sporðreistist ekki, en nei, það er nú eitthvað sem við keppum ekki við. En við eigum okkar sess hérna og fólk hefur komið hérna alls staðar af á landinu til að vera á Berjadögum.“ Hátíðin byrjar á tónleikum við kertaljós. „Það verður fluttur flautukvartett eftir Haydn sem Melkorka Ólafsdóttir blæs og Bragi Bergþórsson syngur ljóð eftir Mendelssohn. Á laugardaginn er opinn markaður milli eitt og fimm, líklega í Guðmundarhúsi við Strandgötu. Þar verður boðið upp á berjaafurðir, sultur, saftir og smökkun. Á sama tíma er opið hús hjá myndlistarmönnum bæjarins, þeim Guðrúnu Þórisdóttur, Kristjönu Sveinsdóttur og Hólmfríði Arngrímsdóttur. Á þessum stöðum verða Spilmenn Ríkínís að leika á fornhljóðfæri sín, þeir fara á milli og uppákomur verða. Um kvöldið verða tónleikar í kirkjunni þar sem Jón Þorsteinsson syngur sálma sem hann lærði ungur af afa sínum á lofti kirkjunnar. Svo eru tónleikar á sunnudaginn í kirkjunni undir yfirskriftinni Allabaddarí, með franskri tónlist. Hátíðin endar á léttu nótunum á sunnudagskvöldið.“ Berjadagar eru haldnir í ellefta sinn. „Það hefur alltaf verið að aukast aðsóknin. Það var nú ekki mikil aðsókn til að byrja með en síðan hefur þetta verið að vinna sér sess og var allt fullt í fyrra á öllum viðburðum þannig að ég er bjartsýnn núna. Berjaspretta er víst með því betri sem gerist í ár.“ - kbs
Mest lesið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Förðunardrottning selur á Framnesvegi Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Fleiri fréttir Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Sjá meira