Ný gögn um Drekasvæðið gefa meiri vonir um olíu 23. febrúar 2009 18:52
Ný rannsóknargögn um Drekasvæðið, sem norskt fyrirtæki hefur unnið, gefa meiri vonir um olíu undan ströndum Íslands. Milli tíu og tuttugu olíufyrirtæki hafa sýnt áhuga á að bjóða í olíuleitina.Alþjóðlegur netmiðill, sem sérhæfir sig í fréttum af olíusvæðum á hafsbotni, greindi nýlega frá hinum nýju gögnum og sagði þau gefa meiri vonir um olíu undan ströndum Íslands. Í raun er um að ræða nýja úrvinnslu á gögnum sem íslensk og norsk stjórnvöld öfluðu fyrir tveimur áratugum. Fyrirtækið Spectrum, sem er með höfuðstöðvar í Noregi, beitti nýjustu tölvutækni til að fá betri og nákvæmari upplýsingar úr gögnunum og hafa sérfræðingar Orkustofnunar nú fengið aðgang að þeim.Þeir Kristinn Einarsson, verkefnisstjóri olíuleitar, og Þórarinn Sveinn Arnarson, haffræðingur hjá Orkustofnun, sýndu dæmi í fréttum Stöðvar 2 hvernig þessi nýju gögn Spectrum sýna meðal annars flekki í jarðlögum á Drekasvæðinu sem þykja líklegir til að geyma olíu eða gas.Spectrum auglýsir nýju gögnin til sölu á alþjóðamarkaði og hjálpar þannig íslenskum stjórnvöldum að markaðssetja Drekasvæðið. Þrátt fyrir efnahagskreppu og verðfall á olíu merkja Orkustofnunarmenn verulegan áhuga olíuleitarfyrirtækja á útboðinu en því lýkur í maí.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Sjá meira