Dauð hross í skurði og folald troðið niður við heyrúllu Valur Grettisson skrifar 27. maí 2009 12:39 Lýsingar Héraðsdýralæknis eru óhugnanlegar. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands hafa gert alvarlegar athugasemdir við aðbúnað hrossa á tveimur bæjum á Mýrum í Borgarnesi. Bréf þess eðlis var sent sveitastjórn Borgarbyggðar, sýslumanns, yfirdýralæknis auk Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og ábúanda á jörðunum sem í hlut eiga. Lýsingar í bréfinu eru óhugnanlegar. Þar segir meðal annars: "Nú þegar við fórum blasti við okkur mörg dauð hross í skurði sem hálfpartinn hafði verið grafið yfir og hræ af folaldi hafði verið troðið niður við heyrúllur sem gefnar höfðu verið. Hræ af einu hrossi var einnig í skurði sem fullur var af vatni." Þegar Vísir hafði samband við héraðsdýralækninn Gunnar Gauta Gunnarsson sagði hann aðbúnað talsvert verri á öðrum bænum heldur en hinum. Hann sagði að hestarnir sem lágu dauðir í skurðinum hefðu verið urðaðir á réttan hátt á föstudaginn síðasta. Engu að síður voru lögregla og búfjáreftirlitsmaður kölluð að landinu á mánudag til þess að fjarlægja þau hross sem þar voru enn. „Þau undu ekki hag sínum vel. Þau voru komin á miðjan veg," segir Gunnar en hestarnir voru þá fyrir umferð sem þar átti leið hjá. Ábúandi á jörðinni er ekki með fasta viðveru á bænum að sögn Gunnars. Honum er þá skylt að tilnefna tilsjónarmann. Það hafi ekki verið gert. Aftur á móti eru engin sérstök viðurlög tilnefni maður ekki tilsjónarmann yfir jörðinni. Eigandi jarðarinnar er tæplega fimmtugur karlmaður. Málið er nú í höndum sýslumanns sem tekur ákvörðun hvort kært verði í málinu. Það var Skessuhorn sem greindi fyrst frá málinu.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira