Gerði íslenska mafíumynd 27. nóvember 2009 06:00 samdi handritið og leikstýrði Stefán Þór, 16 ára, er handritshöfundur og leikstjóri íslenskrar 35 mínútna stuttmyndar um mafíu og glæpastarfsemi. Fréttablaðið/Stefán
Mafíumyndir hafa ekki leikið stórt hlutverk í íslenskri kvikmyndagerð undanfarin ár. Á því kann að verða breyting ef marka má nýja íslenska stuttmynd. „Þetta er í raun mjög stór mynd á okkar mælikvarða," segir Stefán Þór Þorgeirsson, handritshöfundur og leikstjóri íslenskrar stuttmyndar um mafíu og glæpastarfsemi. Stefán Þór, 16 ára, stundar nám í Menntaskólanum í Reykjavík, en myndina gerði hann ásamt vini sínum, Stefáni Atla Rúnarssyni, þegar þeir voru í Garðaskóla í Garðabæ. „Myndin fjallar um strák sem kemst á snoðir um áform rúmensku mafíunnar á Íslandi um að ræna forsetanum og kúga fé út úr ríkinu," útskýrir Stefán Þór. „Ég fór bara að hugsa að það er engin íslensk mafíumynd til í raun. Maður horfir bara á þessar bandarísku myndir sem eru fullar af byssum og sprengingum. Við ákváðum því að gera svona mynd og gera hana sem ódýrast. Við eyddum mjög litlu en myndin skartar fullt af bílum, mjög flottum bardaga og byssuatriðum. Við gerum tæknibrellurnar sjálfir og notumst við nýjustu tæknibrelluforritin," bætir hann við, en fimm aðalleikarar og nokkrir aukaleikarar eru í myndinni. „Vinir, foreldrar, ættingjar og fyrirtækjastjórnendur léku meðal annars í einstaka atriðum og tóku allir vel í það," segir hann. Aðspurður segir Stefán þá félaga stefna á að koma myndinni á framfæri, en þeir félagar byrjuðu ungir að fikta við kvikmyndagerð. „Við byrjuðum í 5. bekk svo við höfum svolítið mikla reynslu. Við höfum áður gert stuttmynd og planið er að eyða öllu jólafríinu í að gera aðra." Spurður hvort hann ætli að leggja kvikmyndagerðina fyrir sig segir Stefán Þór það óráðið. „Ég ætla annaðhvort að verða kvikmyndagerðarmaður eða læknir." - ag
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira