Innlent

Allt á huldu um næsta bankastjóra

Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson munu væntanlega láta af störfum á morgun.
Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson munu væntanlega láta af störfum á morgun.

Allar líkur eru á því að Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason seðlabankastjórar láti af störfum á morgun þegar að breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands verða samþykktar. Þá mun nýr bankastjóri taka við til bráðabirgða þangað til búið verður að skipa nýjan bankastjóra eftir auglýsingu.

Forsætisráðherra hefur ekki viljað gefa upp hver verður settur bankastjóri til bráðabirgða og Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur bankans, er þögull sem gröfin. „Ég ætla ekki að tjá mig neitt við fjölmiðla um þessi umskipti í bankanum að svo stöddu," sagði Arnór þegar fréttastofa spurði hann hvort honum hefði verið boðin staðan.

Már Guðmundsson, fyrrverandi aðalhagfræðingur bankans, var um tíma nefndur til sögunnar sem næsti seðlabankastjóri en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann verið mjög gagnrýninn á frumvarpið sem samþykkt verður á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×