Lengri frestur gefinn til að endurfjármagna bankanna 16. júlí 2009 22:50
Lengri frestur hefur verið gefinn til þess að endurfjármagna bankanna en ríkið hefur átt í sleitulausum samningaviðræðum við kröfuhafa undanfarna daga og vikur samkvæmt tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Fresturinn átti að renna út á morgun en uppi voru getgátur um að bandarískir vogunar - og tryggingastjóðir myndu eignast bankana að lokum. Samningar eru á lokastigum samkvæmt fjármálaráðuneytinu en á mánudaginn verður haldinn blaðamannafundur þar sem gert verður grein fyrir stöðu mála. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér: Undanfarnar vikur og mánuði hafa staðið yfir samningaviðræður milli fulltrúa stjórnvalda, annarsvegar, og skilanefnda gömlu bankanna f.h. kröfuhafa, hins vegar, um endanleg fjárhagsskil milli gömlu og nýju bankanna. Í febrúar sl. ákvað ríkisstjórnin að fulltrúar þriggja ráðuneyta kæmu að viðræðunum fyrir hönd ríkisstjórnar, að fjármálaráðuneyti myndi leiða þær og að ráðnir yrðu erlendir ráðgjafar (breska ráðgjafafyrirtækið Hawkpoint) til að annast samningagerð fyrir hönd ríkisins. Þá réði fjármálaráðuneytið reyndan bankamann, Þorstein Þorsteinsson, til að hafa yfirumsjón með samningaviðræðunum. Á grundvelli neyðarlaganna sem sett voru í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins í október voru innlendar eignir og skuldir gömlu bankanna fluttar yfir í nýju bankana og skuldbundu stjórnvöld sig til að tryggja að mismunur yfirfærðra eigna og skulda yrði bættur kröfuhöfum gömlu bankanna og að gætt yrði gagnsæis og sanngirni í því efni. Fjármálaeftirlitið (FME) lét meta yfirfærðar eignir og réði til þess endurskoðendafyrirtækið Deloitte og var matið vottað af ráðgjafarfyrirtækinu Oliver Wyman. Með því uppfylltu stjórnvöld þau fyrirheit sem m.a. voru veitt í viljayfirlýsingu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í nóvember sl. Samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins var veittur frestur til 17. þ.m. til að ljúka samningum, þ.e. til morguns, en fresturinn hafði áður verið framlengdur. Undirbúningur samninga hófst í mars sl., en eiginlegar viðræður hófust síðar. Þær hafa nú staðið sleitulaust síðustu vikur og daga og verið bæði viðkvæmar og flóknar. Stjórnvöld hafa kappkostað að tryggja hagsmuni Íslands í þessum viðræðum, um leið og fullrar sanngirni væri gætt gagnvart viðsemjendum, en þar er um ólíka aðila að ræða með mismunandi hagsmuni. Samningar eru nú á lokastigi og er stefnt að því að þeim verði í meginatriðum lokið innan tilsettra tímamarka, en unnið verður að endanlegum frágangi og miðlun upplýsinga til kröfuhafa allra næstu daga.Ráðgert er að ríkisstjórnin gefi út yfirlýsingu nk. mánudag þar sem grein verður gerð fyrir niðurstöðum samningaviðræðna og þá um leið hvernig staðið verður að endurfjármögnun bankanna.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira