Innlent

Alvarlegt umferðaslys við Hafnarfjörð - götur lokaðar

Umferðarslys átti sér stað í Engidalnum í Hafnarfirði nærri afleggjaranum að Álftanesi klukkan rúmlega sjö í kvöld. Lögreglan er búinn að loka veginum inn í Hafnarfjörð og því er vegfarendum bent á að fara Vífilstaðarveginn vilji þeir komast klakklaust til síns heima.

Málsatvik eru óljós enn sem komið er en ökumaður bifreiðar hefur verið fluttur á sjúkrahús. Ekki er vitað um líðan hans.  Samkvæmt lögreglunni voru það hópbifreið og fólksbíll sem lentu saman.

Nánari fregnir verður greint frá málinu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×