Hátíð bókmenntanna 5. september 2009 03:15 Bókmenntir. Finnsk-eistneska skáldkonan Sofi Oksanen, sem hefur vakið gríðarlega athygli með prósaverkum sínum, er meðal gesta á hátíðinni en skáldsaga hennar, Skömmin, er væntanleg í íslenskri útgáfu.Mynd/Salomonsen
Á morgun hefst Bókmenntahátíð í Reykjavík í níunda sinn með hátíðlegri samkomu í Norræna húsinu. Þar liggja um margt rætur hátíðarinnar og hefur húsið ásamt Iðnó lengst af verið aðalvettvangur hátíðarinnar, sem er alltaf fjölsótt af hundruðum áhugamanna um það sem í bókum stendur. Dagskráin á þessari níundu hátíð bókmenntamanna er að vanda viðamikil. Hádegisviðtöl í Iðnó, spjall í eftirmiðdaginn í Iðnó og húslestrar nokkurra höfunda á kvöldin við Tjörnina eru fyrir löngu orðnir fastir liðir og hafa forstöðumenn hátíðarinnar þráast við að færa hana í stærri hús, þótt aðsóknin sé alltaf mikil og oft þröngt setið og staðið þegar áhugaverðir höfundar eru á ferðinni. Eins og oft áður eru haldnir nokkrir fyrirlestrar á hátíðinni og verða þeir ýmist á hinu nýja Háskólatorgi eða í Hátíðasal Háskólans. Enginn kostur er að gera grein fyrir allri dagskránni í stuttri blaðagrein, en rétt er að benda áhugasömum á vefsíðu hátíðarinnar þar sem dagskrá með ítarupplýsingum liggur fyrir. Þá hefur nýtt hefti Tímarits Máls og menningar verið tileinkað hátíðinni og hluta af gestum hennar. Það fæst í öllum betri bókaverslunum. Á laugardaginn eftir viku verður þing helgað útgefendum í Norræna húsinu þar sem þræðir inn í framtíðina verða reifaðir: Kristján B. Jónasson, Heiko Strunk, Helga Frese-Resch, Chad Post og Alexander Schwarz leita framtíðar bókaútgefenda, jafnvel bókarinnar, í breyttum heimi. Þann sama dag verður heill dagur í dagskránni helgaður ljóðinu: hingað koma að vestan ljóðskáld á vegum kanadísku Griffin-ljóðaverðlaunanna og stendur dagskráin yfir frá 13-17. Þar munu skáld sem þegið hafa verðlaunin lesa ljóð sín, en ljóð allra skálda sem taka þátt hafa verið þýdd og verður þýðingunni varpað á skjá jafnóðum á meðan á lestrinum stendur. Griffin-skáldin eru hvert öðru magnaðra og í hópnum er til dæmis Michael Ondaatje. Í tengslum við komu Griffin-skáldanna til Íslands var ákveðið að gefa út ljóðabók með þýðingum á ljóðum þessara skálda. Ber bókin titilinn Birtan í húminu og koma margir frábærir ljóðaþýðendur að verkinu. Hægt verður að nálgast bókina á öllum atburðum hátíðarinnar sem og í verslunum Pennans. Tíu íslensk skáld koma fram á hátíðinni, auk hóps spyrla úr ólíkum stéttum bókamanna. Erlendu gestirnir utan þeirra Griffin-manna eru Kenýamaður, Kanar, Norðmenn og Danir, Finnar og Litháar, Púertóríkanar og Færeyingar, Þjóðverji, Írani og breskur Pakistani. Allt er þetta fólk sem hefur lagt stund á ýmiss konar skrif um samtíma sinn og liðna tíma í ljóðum, sögum, ritgerðum, heimildaverkum og kvikmyndahandritum og nú er að heyra hvað þessir fulltrúar heimsþorpsins hafa að segja þorpurunum í Reykjavík. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Tónlist Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Lífið Það er komið gó hjá Bó Lífið Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Fleiri fréttir Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Sjá meira
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist