Innlent

Særok á Skutulsfirði

Ísafjörður, sem til forna hét Eyri við Skutulsfjörð.
Ísafjörður, sem til forna hét Eyri við Skutulsfjörð.

Vindur er nú genginn niður á Ísafirði og er þar nú sól og hæglætisveður. Þar var bálhvasst í hviðum í gær og var um tíma særok á Skutulsfirðinum. Í einni hviðunni fauk stæða af fiskikörum úr togara út af bryggjunni og hafa þau marað í hálfu kafi síðan. Þeim verður komið á land með morgninum. Víða annars staðar er enn strekkingsvindur og varað er við hvassviðri á miðhálendinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×