Tekjur Reykjavíkur 1,5 milljörðum lægri 28. nóvember 2009 06:00
Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur óskað eftir að greiða 800 milljónir króna í afgjald til eigenda sinna. Það er 1,5 milljörðum lægra en þeir 2,3 milljarðar sem eigendur höfðu óskað eftir, en það er eðlileg afgreiðsla. Orkuveitan fékk sams konar frest á afgreiðslu í fyrra. Borgarstjórn á eftir að taka beiðnina fyrir. Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður OR, segir að því miður hafi ekki reynst unnt að greiða hærra afgjald í þessu árferði. Hann bendir á að við 800 milljónirnar bætist 0,25 prósenta gjald vegna ábyrgðar borgarinnar á lánum fyrirtækisins, 4-500 milljónir króna. Þær þarf þó að greiða óháð arðgreiðslum. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir að þessi beiðni um frest skýrist meðal annars af tíðindum af fyrirtækinu undanfarnar. Eðlilegt sé að fyrirtæki borgarinnar greiði aukið afgjald, önnur fyrirtæki hafi þegar gert það. Hanna Birna bendir á að ábyrgðargjald OR sé að hækka þannig að samtals greiði fyrirtækið eigendum 1,5 milljarða króna. „Vegna þessa, og þess að afkoma borgarsjóðs hefur verið betri á seinni hluta árs en áætlað var, á ég ekki von á að þessi ósk muni verða til þess að hagræða þurfi meira en gert var ráð fyrir í áætlunum borgarinnar." Orkuveitan mun framkvæma fyrir um 18 milljarða króna á næsta ári og segir Guðlaugur það framlag fyrirtækisins til að halda uppi atvinnustigi. Ekki verður þó farið í Hverahlíðarvirkjun fyrr en tryggt er að kaupendur finnist að orkunni og lánsfé hafi verið tryggt. Það þýðir að semja þarf við framleiðanda túrbína, sem þegar hafa verið pantaðar, um frestun. Árlegur kostnaður vegna frestunar getur numið allt að 100 milljónum á hverja túrbínu, en þær eru þrjár. Umræðum um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, sem áttu að vera á þriðjudag, hefur verið frestað til fimmtudags. Þar verður tekin afstaða til beiðni Orkuveitunnar. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira