Innlent

Slysum fækkar um fjórðung

Slysum í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um fjórðung á einu ári ef miðað er við fjóra fyrstu mánuði ársins og þeir bornir saman við sama tímabil í fyrra. Umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið saman fjölda slysa sem sýnir að fækkunin nemur 25 prósentum.

Einnig var kallað eftir slíkum gögnum frá tryggingafélögunum og sýndu þær tölur að fækkunin næmi 24 prósentum.

„Við höfum náttúrlega reynt að vera sýnilegir á hættulegustu stöðunum í mesta þunganum," segir Kristján Ó. Guðnason, yfirmaður umferðarmála og slysarannsókna hjá lögreglunni.

„En fyrst og fremst tel ég að ökumenn séu hreinlega að verða sífellt betri hér á landi."- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×