Dagur: Meirihlutinn eykur á veggjakrot 8. október 2009 14:59 Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að meirihlutinn í Reykjavík auki á veggjakrot. Fjármunir til aðgerða gegn veggjakroti verði skornir niður úr 156 milljónum króna í 61 milljón króna milli áranna 2008 og 2009. Dagur segir að slíkur niðurskurður eigi sér ekki fordæmi í rekstri borgarinnar. Fram kemur í tilkynningu frá Degi að að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri hafi lagt fram á fundi borgarráðs í dag svar við fyrirspurn Samfylkingarinnar um veggjakrot. Tilefni fyrirspurnarinnar hafi verið að ábendingar bárust úr flestum hverfum borgarinnar um að veggjakrot hafi aldrei verið meira. „Í svarinu kom fram að meira en helmingi minna fé er nú varið í baráttuna gegn veggjakroti en í fyrra. Færa má rök fyrir því að framganga meirihlutans í málinu hafi aukið vandann frekar en að taka á honum. Og engar áætlanir virðast vera um það hvernig taka eigi á aukningunni," segir Dagur. Samfylkingin lagði fram bókun um málið á fundinum í dag. Þar segir að enginn þáttur borgarrekstrarins hafi verið skorinn jafnmikið niður. Á sama tíma hafi veggjakrot aukist og hafi líklega aldrei verið meira í borgarlandinu. „Þetta vekur spurningar um stefnu og yfirlýsingar meirihlutans um "stríð gegn veggjakroti" þar sem fjölmiðlar voru oftar en ekki kallaðir og beðnir að mynda borgarstjóra við þrif. Reynsla nágrannaþjóða bendir til þess að slíkar stríðsyfirlýsingar séu einna verst fallnar til að ná árangri og draga úr veggjakroti nema í algjörum undantekningatilfellum þegar þess sé sérstaklega gætt að orðum sé fylgt fast eftir með mannafla og fjármunum. Því miður virðast áherslur meirihlutans því helst vera fallnar til þess að auka veggjakrot fremur en að draga úr því," segir í bókun Samfylkingarinnar.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fleiri fréttir Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Sjá meira