Ófrýnilegur í Prince of Persia 4. nóvember 2009 06:00 Hörkunagli Vesírinn sem Gísli Örn Garðarsson leikur er náungi sem kallar ekki allt ömmu sína ef marka má stiklu kvikmyndarinnar Prince of Persia: The Sands of Time. „
Þetta er mun meira en ég átti von á, kemur kannski svolítið á óvart,“ segir Gísli Örn Garðarsson. Honum bregður fyrir nokkrum sinnum í stiklu kvikmyndarinnar Prince of Persia: The Sands of Time þar sem Jake Gyllenhaal, Gemma Arterton og Ben Kingsley eru meðal helstu leikara. Stiklan gefur góða mynd af umfangi kvikmyndarinnar, þetta er alvöru „blockbuster“ eins og Kaninn myndi segja. Persóna Gísla, hinn ófrýnilegi Vesír, er kynnt sérstaklega til leiks og leikarinn útskýrir að þessi harðskeytti náungi sé nokkuð fyrirferðarmikill. Þegar hann er á annað borð á hvíta tjaldinu. „Hann er vondi gæinn og nokkuð auðþekkjanlegur sem slíkur.“ Gísli hefur reynt að tala þetta hlutverk sitt aðeins niður og látið að því liggja í sumum viðtölum að hann kynni að enda á klippiborðinu. „Maður veit aldrei,“ segir Gísli en stiklan bendir til annars. Gísli kveðst ekki geta gefið neitt upp um framvindu mála og er þögull sem gröfin þegar hann er spurður að því hvort einhver möguleiki sé á því að hann geti leikið í framhaldsmynd. „Ég er samningsbundinn Jerry Bruckheimer og Walt Disney og fer ekki að tala af mér í einhverju viðtali þegar svoleiðis fyrirbæri eru annars vegar,“ segir Gísli en til stóð að leikarinn myndi mæta í tökur í London í síðustu viku. Ekkert varð hins vegar af þeim. „Maður sér það kannski í þessari stiklu hvað þetta er stórt umfangs, það kom mér í opna skjöldu.“- fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Fleiri fréttir Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Sjá meira