Ísland í aðalhlutverki hjá Metropolitan 29. október 2009 04:00 Sjónrænn leikstjóri Sýningar Roberts Lepage þykja mikið sjónarspil og nú hyggst þessi leikstjóri nýta sér íslenskt landslag í uppfærslu Metropolitan-óperunnar á Niflungahring Wagners.NOrdicPhotos/afp
Ísland verður í forgrunni í uppfærslu Metropolitan-óperunnar í New York á Niflungahring Richards Wagner. Þetta upplýsir leikstjóri sýningarinnar, hinn virti Robert Lepage, í viðtali við Wall Street Journal. Þetta er talið vera djarfur leikur hjá þessu óperuhúsi, ekki hafi verið búin til ný útgáfa af þessu verki Wagners í 23 ár og þá er Lepage ekki feiminn við að reyna eitthvað nýtt. Hann þótti til að mynda brjóta hálfgert blað með útgáfu sinni af Bölvun Fausts eftir Berlioz sem sýnd var á sama stað í fyrra. Lepage segir í samtali við Wall Street Journal að hann heimsæki Ísland eins oft og hann geti. Og að landið og landslagið muni verða fyrirferðarmikið í uppfærslunni. „Wagner notaði íslensku fornsögurnar til að færa þýsku mýturnar frá Grikkjum og Miðjarðarhafinu til sinna norrænu róta,“ segir Lepage í viðtalinu og byrjar í kjölfarið að dásama Ísland og íslenskt landslag. „Ísland er bara önnur pláneta, heimur út af fyrir sig. Jörðin er ótrúlega heit, þeir þurfa ekki einu sinni að hita húsin sín og þú getur synt í ám þrátt fyrir snjó. Þannig að þegar þú hefur verið á Íslandi og hugsar svo um Niflungahringinn þá sérðu hann ekki sömu augum.“ Lepage þykir í raun vera einstakt fyrirbæri í leikhúsheiminum, sýningar hans hafa hlotið mikið lof úti um allan heim og ef marka má skrif Wall Street Journal þá er hann vinsælastur meðal „hipp-leikhúsgesta“. Hann hefur jafnframt lýst því yfir að í óperuforminu geti allar listir sameinast í eitt.- fgg
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira