Fleiri skip til rækjuveiða 21. maí 2009 19:41
Hreyfing virðist vera komin á rækjuveiðar á ný eftir margra ára ördeyðu. Tvöfalt fleiri skip halda til veiða í ár miðað við síðasta ár og verið er að ræsa rækjuverksmiðjur á ný.Ólafsvíkurbáturinn Arnar í Hákoti er að koma inn til Grundarfjarðar með fjögur tonn af rækju sem fengust í Breiðafirði. Á sama tíma er verið að landa úr togaranum Sigurborgu, sem kom með 34 tonna rækjufarm úr Kolluál út af Snæfellsnesi. Undanfarin ár hafa einungis sex-sjö skip og bátar verið á rækjuveiðum hérlendis og heildarveiðin numið aðeins fáum prósentum af því sem mest var fyrir síðustu aldamót.Sjómennirnir um borð í Sigurborgu rekja þennan aukna áhuga einkum til hærra afurðaverðs vegna gengislækkunar krónunnar og segjast hafa ágætt upp úr veiðunum.Arnar í Hákoti er einn af síðustu trébátunum á Íslandsmiðum en hann er að byrja í rækjunni ásamt nokkrum öðrum skipum. Í ár verða í kringum tólf skip á rækjuveiðum, þar af nokkrir togarar. Þá er verið að gangsetja rækjuverksmiðjur á ný, meðal annars á Siglufirði. Aflinn úr Sigurborgu var settur í flutningabíl sem ók honum til Sauðárkróks í rækjuvinnsluna Dögun.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sjá meira