Nordisk Panorama sett 25. september 2009 06:00 Úr myndinni Hlið við hlið eftir Christian Sønderby Jepsen sem sýnd er á hátíðinni. Mynd Nordisk Panorama
Tuttugasta hátíð norrænna heimildar- og stuttmynda er hafin í Reykjavík, Nordisk Panorama, eins og hún er kölluð, en setning hátíðarinnar rennur í kvöld saman við lokahóf RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík. Veisluhöld íslenskra kvikmyndaáhugamanna halda því áfram en RIFF lýkur ekki sýningum fyrr en á sunnudagskvöld; Nordisk Panorama varir frá föstudegi til miðvikudags í næstu viku. Nordisk panorama-hátíðin var síðast haldin í Reykjavík fyrir fimm árum og setti þá met í aðsókn.. Hátíðin fer milli fimm borga: Bergen, Oulu, Málmey og Árósar taka á móti henni milli þess sem hún kemur til Reykjavíkur. Samtök kvikmyndagerðarmanna standa fyrir hátíðinni gegnum samnorræn samtök sín; Filmkontakt Nord, en þaðan er aðstoðað við dreifingu norrænna heimildar- og stuttmynda um heim allan. Þar er stór banki með verkum norrænna kvikmyndagerðarmanna. Bankinn sá er opinn „online“-dreifingaraðilum um heim allan. Hefur hann nú verið rekinn í stafrænu formi í rúmt ár. Í tengslum við hátíðina er haldinn markaður þar sem kaupendur og söluaðilar koma saman og ráða ráðum sínum. Á hans vegum er fjárfestingarmessa þar sem valinn hópur framleiðenda kynnir ný og væntanleg verkefni fyrir ráðandi aðilum í kaupum og styrkveitingum, bæði frá Norðurlöndum og víðar að. Nordisk Panorama á í harðri samkeppni við nálægar hátíðir. Það er jú keppikefli hátíða að frumsýna myndir og umhverfis okkur er ekki bara RIFF, heldur líka ein virtasta hátíð á Vesturlöndum í Toronto og kvikmyndahátíðin í Kaupmannahöfn er mikilsverð tilraun borgaryfirvalda þar, með tilstyrk stjórnvalda til að gera borgina og hátíðina þar að stærstu hátíð síðari hluta árs á þessum slóðum. Þá eru ónefndar hátíðirnar í Edinborg, Sheffield, Gautaborg og víðar sem keppa um athygli kaupenda og söluaðila. Á almannavitorði er að Nordisk Panorama í Reykjavík hefur haft sérstakt aðdráttarafl, sem nær bæði austur og vestur um haf. Ræður þar bæði lega landsins, orðspor þess í ferðamannaþjónustu og landkostum. Á hátíðinni er mikill fjöldi nýrra og nýlegra heimildar- og stuttmynda á dagskrá. Líkt og RIFF er Nordisk Panorama flokkaskipt hátíð: keppt er um nokkra verðlaunagripi í ýmsum deildum. Kallaðir eru til virtir og reyndir fagaðilar frá löndum austanhafs og vestan. Fyrir bragðið er talverður hópur á hátíðinni sem kemur nokkrum sinnum saman á ári og deilir þá reynslu og þekkingu af stöðunni í heimi stuttmynda og heimildarmynda. Regnboginn verður aðalvettvangur hátíðarinnar en bar hátíðarinnar verður á Íslenska barnum í Pósthússtræti og markaðurinn verður á Hótel Borg. Aðaldeild á hátíðinni eru heimildarmyndir sem verða nú 21; þar keppir Draumalandið við aðrar norrænar myndir. Á stuttmyndaparti hennar eru fjörutíu myndir til sýnis, þeirra á meðal stuttmyndin Anna sem Rúnar Rúnarsson gerði í Kaupmannahöfn og Sykurmoli, mynd Söru Gunnarsdóttur; þriðja myndin er mynd Ragnars Agnarssonar, Epic Fail, og mynd Unu Lorentsen, Álagablettir. Í flokki ungra höfunda eru ellefu myndir. Þá er boðið upp á ellefu sérstök dagskráratriði.Nordisk Panorama heldur enn stöðu sinni sem veigamesta heimildar- og stuttmyndahátíð Norðurlanda þótt ýmis merki séu um að einn stór styrktaraðili hennar, Norræni sjónvarps- og kvikmyndasjóðurinn, hafi í styrkveitingum sínum lagt hana til jafns við hátíðina í Kaupmannahöfn, sem mörgum þykir gagnrýnivert og fæst ekki skýrt nema með þjóðerni forstöðukonu sjóðsins. Dagskrá hátíðarinnar er aðgengileg í nær sextíu síðna bæklingi og á vef hennar: www.nordiskpanorama.com. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Sjá meira