Afstaða til aðildarviðræðna að ESB hugsanlega tekin í kvöld Heimir Már Pétursson skrifar 10. júlí 2009 12:06 Hart hefur verið tekist á um ESB í morgun. Mynd/ Vilhelm.
Það gæti legið fyrir í kvöld hvort Íslendingar hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Síðari umræða um ályktun þar að lútandi fer fram á Alþingi í dag. Formaður Framsóknarflokksins leggst gegn því að tillaga stjórnarinnar um aðildarumsókn verði samþykkt. Þingsályktunartillögur ríkisstjórnarinnar annars vegar og Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hins vegar hafa verið til umræðu í utanríkismálanefnd Alþingis um nokkra vikna skeið. Meirihlutinn skilar frá sér um sjötíu síðna greinargerð þar sem farið er yfir forsendur málsins og þá hagsmuni sem hafa beri að leiðarljósi í aðilarviðræðum við Evrópusambandið. Meirihluti nefndarinnar leggur til nokkrar breytingar á sjálfum ályktunartexta þingsályktunarinnar sem miða að því að styrkja hlutverk þingsins og aðkomu þess að væntanlegum viðræðum, en nú hljómar tillagan svona. Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Svo virðist sem Framsóknarmenn leggist gegn því nú að farið verði í viðræður á grundvelli þingsályktunartillögu meirihlutans, því í nefndaráliti sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins skrifar einn undir segir að málið sé ekki nægilega vel unnið til að hægt sé að ganga til aðildarviðræðna á grundvelli álits meiri hlutans. Enn eigi eftir að leggja í þá grundvallarvinnu að greina og meta hagsmuni Íslands og setja samninganefnd ófrávíkjanleg skilyrði. Auk þess virðast áhrif ESB-aðildar á annað alþjóðasamstarf ekki hafa verið metin nægilega. Utanríkisráðherra leggur áherslu á að hægt verði að kynna áform Íslands um aðildarumsókn á fundi utanríkisráðherra aðildarríkja Evrópusambandsins, sem fram fer hinn 27. júlí, eða eftir rúman hálfan mánuð. En Svíar hafa nú tekið við forystu sambandsins og fara með hana næstu sex mánuði. Á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna á Egilsstöðum hinn 14. júní síðast liðin voru þessi mál rædd og á fréttamannafundi að þeim fundi loknum, lagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra áherslu á að tillagan yrði tekin fyrir á umræddum utanríkisráðherrafundi eftir hálfan mánuð. Líklegt er talið að nokkrir þingmenn muni leggja fram breytingartillögu úi dag, sem feli í sér að fyrst verði farið í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort yfirleitt skuli sótt um aðild að Evrópusambandinu. Allar líkur eru á að slík tillaga verði felld. Aukin ræðutími verður gefinn um þessa síðari umræðu um þingsályktunartillöguna. Framsögumenn nefndarálita fá 60 mínútur, fyrstu ræðumenn flokka fá 40 mínútur og aðrir þingmenn 20 mínútur í fyrstu ræðu sinni.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira