Innlent

Steingrímur víst mættur - var í símanum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins gerði athugasemdir við það að ráðherrar Vinstri grænna skyldu ekki vera mættir við upphaf umræðunnar um tillögu ríkisstjórnarinnar sem gengur út á aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Hann spurði um stuðning flokksins við tillöguna sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir í samtali við fréttastofu að um vindhögg sé að ræða hjá Sigmundi.

„Ég er búinn að vera hér allan tímann og er á mælendaskrá," segir Steingrímur. „Ég var við upphaf umræðunnar og þurfti síðan að bregða mér frá í fimm mínútur og taka áríðandi símtal. Svandís er hérna líka," segir fjármálaráðherrann. „Katrín Jakobsdóttir var stödd á stórri alþjóðlegri ráðstefnu og hún er á leiðinni. Ögmundur er staddur erlendis þannig að ekki er við hann að sakast og Jón Bjarnason er hér skammt undan. Þannig að þetta er nú vindhögg hjá formanninum að mínu mati," segir Steingrímur.

 




















Fleiri fréttir

Sjá meira


×